Ruglið
16.05.2007 21:26:51 / arnie

Nýtt met

Sælt veri fólkið. Mér sýnist nýtt met hafa verið slegið í heimsóknum á síðuna í dag. Hvað er það sem veldur því? Kannski hafa menn átt von á því að ég segði eitthvað á gamals aldri og nú er hér með búið að verða við þeim óskum, nú eða vonum. Reyndar held ég að það séu ekki margir sem eru að kíkja hér inn, allavega skilja þeir ekki mikið eftir sig. Annars reikna ég ekki með því að síðunni verði  sinnt nokkuð meira úr þessu. Að lokum vil ég bara segja; gangið á Guðs vegum

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 08:50:26 / arnie

Ekki mikil viðbrögð

Sælt veri fólkið. Það er ekki hægt að segja að viðbrögðin við vísunni hafi verið mikil, allavega ekki í kommentum. Hinsvegar tel ég mig kominn með rétta svarið svo ég er ekkert aðframkominn. En í gamni ætla ég að setja aðra hér inn sem ég gat ekki fundið lausn á en ég hjó samt nærri. Vísan er að öllum líkindum svona (skrifað eftir minni);

       Spunavafinn ég var til fóta
       vaninn að bóndinn svaf mér hjá
       léttúðug lét mig fljóta
       leikið hefur verið á

Þó svo viðbrögðin hafi ekki verið mikil í kommentum eins og fyrr sagði þá sá ég samt stóran mun á heimsóknum á síðuna og jaðraði það við að ég hefði komist í vinsæl blogg hjá MBL, einu ljóðurinn á því ráði er bara sá að þetta er ekki moggablogg svo ég hafði engann séns. jæja látið á þetta reyna

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 23:48:18 / arnie

Kominn tími á nýja færslu

Kominn tími á nýja færslu.
Það hefur nú sennilega alltof mikið drifið á dagana síðan síðast svo það verður nú ekki talið upp hér. Eitt ætla ég nú samt að segja, en það er að ég hef gengið í Lionshreyfinguna og mæti þar á fundi hálfsmánaðarlega. Það er að stefna í venju að ég fái á mig gátu í vísna formi, á hverjum fundi, og ég láti aðra frá mér í staðinn og síðan eigum við að koma með lausnir á næsta fund. Satt best að segja þá hefur mér gengið bölvanlega með þessar gátur sem ég hef átt að ráða (ásamt þeim sem við borðið sitja), ég hef nefnilega ekki getað komið með rétt svar við neinni ennþá en hef hins vegar fengið eitt rétt við mínum! Því ætla ég að setja inn hér nýjustu afurðina með von um að einhver sem villist inná þessa síðu geti verið mér innan handar við að finna lausnina á henni. En vísan er svona:

Falleg mislit ær ég er
er á buxum síðum
kalda fætur kali ver
í klemmu lendi tíðum.

Þetta er þannig að sama orðið á við í öllum línunum og er það eina rétta svarið eða bara eitt orð.

Er ekki einhver viskubrunnurinn hér sem getur rétt mér hjálparhönd??!! :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.10.2006 12:55:42 / arnie

Jæja

Spurning hvort það sé kominn tími á nýja færslu. Það er ekki nema einn sem virðist sækja þessu síðu og vildi fá eitthvað gott fyrir að vera númer 200. Hún má nú eiga það að hún er dyggur lesandi. Kannski hún fái bara svolítið sem hún er búin að bíða lengi eftir, ef þú veist hvað ég á við skaltu rukka um það næst! Annars hef ég nú annsi lítið að segja eins og er, enda hefur þetta blogg sýnt það og sannað. 

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 22:44:40 / arnie

Lítil skilaboð

Nýtt úr ævinlega til taks loks annars ég gumi ann ðððððð fyndið annara rífast aftur argur ððððð slælega ofinn fjöður annmarka skyldleika konunnar illu, löngu dáin innar regins. Þá útrás þennkjandi eru tígulegir tannlæknar alltaf. Jósef óángæður nema amma.

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 18:15:18 / arnie

.....

Hvernig væri nú að setja nokkrar línur á blað! Það er nú eins og það er, mig grunaði að ég myndi nú ekki vera duglegur við þetta! Ég verð nú að segja að góða veðrið er að leika við okkur í dag og það er greinilegt að Víkin er sólarmeginn í tilverunni því það var þoka allt í kring, en sólin skein þar glatt. Annars er mest lítið að frétta af mínum hugrenningum. Var að klára að bera á pallinn sunnan við hús, þurfti að ná mér í húfu fljótlega eftir að ég byrjaði sökum mikillar sólar en gróskan á kollinum er að komast í samt lag eftir að sprettunni var fórnað. Mikið er nú samt ljúft að vera svona "nakinn" á höfðinu. Ég ætla að láta þetta duga í bili, aldrei að vita hvenær ruðst verður fram á ritvöllinn næst!

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 14:47:12 / arnie

alltaf sama sagan

Það virðist ný saga og gömul að allir þeir sem ryðjast inní bloggheiminn og ætla að hastla sér völl þar, þó svo að í smáum mæli sé, að þá taka tölvur þeirra sig til og mótmæla hástöfum. Allavega hefur maður séð víða þar sem talað er um að tölvurnar séu bilaðar frjósi og þess háttar. Hjá mér er þetta þannig að mín tölva er að reyna mig í litunum í hvert skipti sem ég reyni að starta henni upp. Fyrst er það blái liturinn svo græni, því næst er hann rauður og yfir í það að vera svartur. þetta segir mér, óglöggum tölvunotanda, sem þykist kannski vita eitthvað smávegis, að skjákortið sé búið að gefa upp öndina...:evil: alveg fæ ég grænar þegar þetta drasl bilar!
Einn nett pirraður, nennir ekki að standa í þessu, kveður að sinni

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 10:46:45 / arnie

Afmæli

Sælt veri fólkið sem álpast inná þessa síðu. Það var vitað alveg frá upphafi að ég myndi ekki vera ötull ritari eins og raunin er. En bókin sem ég var að rita um í síðustu færslu heitir Skuggi vindsins og er eftir spænskan höfund, ég mæli eindregið með henni sem og hinum kiljunum sem ég fékk en það voru íslensku bækurnar; Afturelding og Hrafninn (minnir mig að hún heiti eftir Vilborgu Davíðsdóttur). Allar þessar bækur eru þannig að ég las þangað til þær voru búnar.
Ekki man ég eftir því að mikið hafi drifið á dagana síðan ég "skriftaði" síðast, allavega ekkert sem ratar inná þessa síðu.
Helsta ástæða þess að ég skrifa nú er sú að ég ætla að óska mér sjálfum til hamingju með afmælið! Það er reyndar búið að syngja fyrir mig í morgun og var það bara allt í lagi, kom skemmtilega á óvart. Annar sem söng er í karlakór svo þetta blessaðist hjá þeim félögum :D

» 3 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 10:30:41 / arnie

bækur

Sælt veri fólkið. Ýmislegt hefur nú að dagana drifið síðan síðast. Meðal annars fékk ég sendan mánaðarlegan skammt frá Eddu-útgáfu og þar leyndist snilldarbók sem ég bara gat ekki hætt að lesa fyrr en hún var öll lesin. Annað var bara látið sitja á hakanum. Meira seinna má ekki vera að þessu núna sökum anna.

» 3 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 16:12:57 / arnie

Slæmur dagur

Dagurinn byrjaði ekki vel, horfði á út um gluggann í vinnunni, þegar var verið að reyna að bjarga manni. Hann var hjartveikur og hafði fengið áfall einhverntíma í morgun. Ég sá hvar lögregla og sjúkraliðar vorur á svæðinu og pumpuðu og blésu í mannin til skiptis og eftir ca 15 mínútur, eftir að ég sá til þeirra fyrst, þá voru börur sóttar inní sjúkrabílinn og maðurinn settur á þær og teppi uppfyrir haus. Svo þegar vinnu lauk þá átti nú heldur betur að sjá mína menn taka lærisveina Mourinho í bakaríið en það fór nú á annan veg.... ekki meira um það. Annars tókst gærkveldi vel hjá okkur vinnufélugunum, vorum fjórir saman og grilluðum og höfðum það bara ágætt fram eftir kveldi og þegar yfir lauk þá lá slatti af svínakjöti, lambakjöti,1 kassi af stórum bjór og 1 flaska af Fishermans plús lítilsháttar af Whiskíi. Þetta á að endurtaka fljótlega!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 19:52:58 / arnie

Góður dagur

Ágætis dagur komin að kveldi. Við fórum tveir vinnufélagar út að borða í hádeginu og var það barasta fínasti málsverður. Ekki skemmdi nú þegar farið var í skoðunarferð eftir að matnum lauk, haldiði að við höfum ekki hitt þessar fínu konur sem gaman var að spjalla við. Að vísu hittum við þær ekki saman, því þegar við vorum rétt búnir að kveðja þá fyrri þá birtist hin og var henni einnig boðið að stíga um borð í sjálfrennireiðina, höfðum við félagarnir gaman að. Ég er að hugsa um að hafa morgundaginn ekki síðri þar sem búið er að lofa okkur sumarblíðu, og grilla ofaní starfsfélagana sem verða við vinnu. Mér skylst nú reyndar að það verði ekki of margir en hinir verða bara að bíta í það súra!.
Hilsen

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 11:31:21 / arnie

Rétt heiti

Sæl öll. Það er ekki víst að það sé rétt heiti á þessari síðu minni, því hvað er þennkjandi maður? Ekki veit ég það, en ég ætla nú samt að bulla hérna aðeins, mér og öðrum til skemmtunar/raunar. Þar sem þetta er í fyrsta skipti sem ég ryðst fram á ritvöllinn og því ómögulegt að segja til um hvernig mér gengur þetta, kannski verður bara ekkert úr þessu. Ég ætla ekki að láta nafn míns getið hér í byrjun en það getur vel verið að það komi í fyllingu tímans. Sjáum til hvernig þetta fer af stað. Kveðjur í bili

» 0 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 5185