Ruglið
Nýtt met
heimsóknum á síðuna í dag. Hvað er það sem veldur því? Kannski hafa
menn átt von á því að ég segði eitthvað á gamals aldri og nú er hér
með búið að verða við þeim óskum, nú eða vonum. Reyndar held ég að
það séu ekki margir sem eru að kíkja hér inn, allavega skilja þeir
ekki mikið eftir sig. Annars reikna ég ekki með því að síðunni
segja; gangið á Guðs vegum
Ekki mikil viðbrögð
vísunni hafi verið mikil, allavega ekki í kommentum. Hinsvegar tel
ég mig kominn með rétta svarið svo ég er ekkert aðframkominn. En í
gamni ætla ég að setja aðra hér inn sem ég gat ekki fundið lausn á
en ég hjó samt nærri. Vísan er að öllum líkindum svona (skrifað
Þó svo viðbrögðin hafi ekki verið mikil í kommentum eins og fyrr
sagði þá sá ég samt stóran mun á heimsóknum á síðuna og jaðraði það
við að ég hefði komist í vinsæl blogg hjá MBL, einu ljóðurinn á því
ráði er bara sá að þetta er ekki moggablogg svo ég hafði engann
Kominn tími á nýja færslu
Það hefur nú sennilega alltof mikið drifið á dagana síðan síðast
svo það verður nú ekki talið upp hér. Eitt ætla ég nú samt að
segja, en það er að ég hef gengið í Lionshreyfinguna og mæti þar á
fundi hálfsmánaðarlega. Það er að stefna í venju að ég fái á mig
gátu í vísna formi, á hverjum fundi, og ég láti aðra frá mér í
staðinn og síðan eigum við að koma með lausnir á næsta fund. Satt
best að segja þá hefur mér gengið bölvanlega með þessar gátur sem
ég hef átt að ráða (ásamt þeim sem við borðið sitja), ég hef
nefnilega ekki getað komið með rétt svar við neinni ennþá en hef
hins vegar fengið eitt rétt við mínum! Því ætla ég að setja inn hér
nýjustu afurðina með von um að einhver sem villist inná þessa síðu
geti verið mér innan handar við að finna lausnina á henni. En vísan
Þetta er þannig að sama orðið á við í öllum línunum og er það eina
Er ekki einhver viskubrunnurinn hér sem getur rétt mér
Jæja
einn sem virðist sækja þessu síðu og vildi fá eitthvað gott fyrir
að vera númer 200. Hún má nú eiga það að hún er dyggur lesandi.
Kannski hún fái bara svolítið sem hún er búin að bíða lengi eftir,
ef þú veist hvað ég á við skaltu rukka um það næst! Annars hef ég
nú annsi lítið að segja eins og er, enda hefur þetta blogg sýnt það
Lítil skilaboð
annara rífast aftur argur ððððð slælega ofinn fjöður annmarka
skyldleika konunnar illu, löngu dáin innar regins. Þá útrás
þennkjandi eru tígulegir tannlæknar alltaf. Jósef óángæður nema
amma.
það er, mig grunaði að ég myndi nú ekki vera duglegur við þetta! Ég
verð nú að segja að góða veðrið er að leika við okkur í dag og það
er greinilegt að Víkin er sólarmeginn í tilverunni því það var þoka
allt í kring, en sólin skein þar glatt. Annars er mest lítið að
frétta af mínum hugrenningum. Var að klára að bera á pallinn sunnan
við hús, þurfti að ná mér í húfu fljótlega eftir að ég byrjaði
sökum mikillar sólar en gróskan á kollinum er að komast í samt lag
eftir að sprettunni var fórnað. Mikið er nú samt ljúft að vera
svona "nakinn" á höfðinu. Ég ætla að láta þetta duga í bili, aldrei
alltaf sama sagan
bloggheiminn og ætla að hastla sér völl þar, þó svo að í smáum mæli
sé, að þá taka tölvur þeirra sig til og mótmæla hástöfum. Allavega
hefur maður séð víða þar sem talað er um að tölvurnar séu bilaðar
frjósi og þess háttar. Hjá mér er þetta þannig að mín tölva er að
reyna mig í litunum í hvert skipti sem ég reyni að starta henni
upp. Fyrst er það blái liturinn svo græni, því næst er hann rauður
og yfir í það að vera svartur. þetta segir mér, óglöggum
tölvunotanda, sem þykist kannski vita eitthvað smávegis, að
skjákortið sé búið að gefa upp öndina...:evil: alveg fæ ég grænar
Einn nett pirraður, nennir ekki að standa í þessu, kveður að
Afmæli
frá upphafi að ég myndi ekki vera ötull ritari eins og raunin er.
En bókin sem ég var að rita um í síðustu færslu heitir Skuggi
vindsins og er eftir spænskan höfund, ég mæli eindregið með henni
sem og hinum kiljunum sem ég fékk en það voru íslensku bækurnar;
Afturelding og Hrafninn (minnir mig að hún heiti eftir Vilborgu
Davíðsdóttur). Allar þessar bækur eru þannig að ég las þangað til
Ekki man ég eftir því að mikið hafi drifið á dagana síðan ég
Helsta ástæða þess að ég skrifa nú er sú að ég ætla að óska mér
sjálfum til hamingju með afmælið! Það er reyndar búið að syngja
fyrir mig í morgun og var það bara allt í lagi, kom skemmtilega á
óvart. Annar sem söng er í karlakór svo þetta blessaðist hjá þeim
bækur
Meðal annars fékk ég sendan mánaðarlegan skammt frá Eddu-útgáfu og
þar leyndist snilldarbók sem ég bara gat ekki hætt að lesa fyrr en
hún var öll lesin. Annað var bara látið sitja á hakanum. Meira
seinna má ekki vera að þessu núna sökum anna.
Slæmur dagur
þegar var verið að reyna að bjarga manni. Hann var hjartveikur og
hafði fengið áfall einhverntíma í morgun. Ég sá hvar lögregla og
sjúkraliðar vorur á svæðinu og pumpuðu og blésu í mannin til
skiptis og eftir ca 15 mínútur, eftir að ég sá til þeirra fyrst, þá
voru börur sóttar inní sjúkrabílinn og maðurinn settur á þær og
teppi uppfyrir haus. Svo þegar vinnu lauk þá átti nú heldur betur
að sjá mína menn taka lærisveina Mourinho í bakaríið en það fór nú
á annan veg.... ekki meira um það. Annars tókst gærkveldi vel hjá
okkur vinnufélugunum, vorum fjórir saman og grilluðum og höfðum það
bara ágætt fram eftir kveldi og þegar yfir lauk þá lá slatti af
svínakjöti, lambakjöti,1 kassi af stórum bjór og 1 flaska af
Fishermans plús lítilsháttar af Whiskíi. Þetta á að endurtaka
fljótlega!!
Góður dagur
borða í hádeginu og var það barasta fínasti málsverður. Ekki
skemmdi nú þegar farið var í skoðunarferð eftir að matnum lauk,
haldiði að við höfum ekki hitt þessar fínu konur sem gaman var að
spjalla við. Að vísu hittum við þær ekki saman, því þegar við vorum
rétt búnir að kveðja þá fyrri þá birtist hin og var henni einnig
boðið að stíga um borð í sjálfrennireiðina, höfðum við félagarnir
gaman að. Ég er að hugsa um að hafa morgundaginn ekki síðri þar sem
búið er að lofa okkur sumarblíðu, og grilla ofaní starfsfélagana
sem verða við vinnu. Mér skylst nú reyndar að það verði ekki of
Hilsen
Rétt heiti
minni, því hvað er þennkjandi maður? Ekki veit ég það, en ég ætla
nú samt að bulla hérna aðeins, mér og öðrum til skemmtunar/raunar.
Þar sem þetta er í fyrsta skipti sem ég ryðst fram á ritvöllinn og
því ómögulegt að segja til um hvernig mér gengur þetta, kannski
verður bara ekkert úr þessu. Ég ætla ekki að láta nafn míns getið
hér í byrjun en það getur vel verið að það komi í fyllingu tímans.
Sjáum til hvernig þetta fer af stað. Kveðjur í bili